Föstudagur, 18. maí 2007
Úr prófum í Brussel
Prófum lauk á þriðjudag eftir langa mæðu á þriðjudag og vorum við lesbræður í guðfræðideildinni þá orðnir allþreyttir eins og gengur. Ég var þó fljótur að taka gleði mína aftur, síðasta prófið gekk vel og á miðvikudagsmorgun flugum við skötuhjúin út á meginlandið og dveljum þessa dagana í frábæru yfirlæti hjá Kristrúnu föðursystur minni í Brussel. Gott sumarfrí hér í ágætu veðri og nauðsynleg hvíld eftir langa törn. Bestu kveðjur frá Brusseli.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.